ESB samþykkir farsímanotkun í flugi 7. apríl 2008 14:33 MYND/Getty Images
Evrópusambandið hefur samþykkt notkun almennings á farsímum í flugvélum. Þannig munu farþegar geta talað í síma, sent SMS eða tölvupóst í flugvélum í evrópskri lofthelgi. Með samþykkinu geta flugfélög sett upp farsímaþjónustu í vélum sínum síðar á þessu ári. Viviane Reding yfirmaður fjarskipta ESB varaði símafyrirtæki við því að verðleggja þjónustuna of hátt og hvatti flugfélög til þess að vernda farþega frá of mikilli símanotkun. „Farsímaþjónusta um borð í flugvélum getur verið mjög áhugaverð ný þjónusta, sérstaklega fyrir viðskiptamenn sem þurfa að vera í sambandi hvar sem þeir eru," sagði hún í viðtali við AP fréttastofuna. Hún varaði þó við því að ef notendur fengju of háa reikninga fyrir notkun í háloftunum, þá myndi þjónustan líklega ekki ná fótfestu. Evrópusambandið hvatti flugfélög einnig til að setja siðareglur um borð og tryggja jafnvægi á milli þeirra sem vilja hringja og þeirra sem vilja fá frið í flugi. „Næstum allir munu vilja nota þessa þjónustu. Við vonum að sumir muni samt njóta flugferða í kyrrð og trufla ekki aðra farþega," sagði Martin Selmayr talsmaður sambandsins. Nokkur flugfélög, þar á meðal Air France, hafa þegar gert tilraunir með farsímaþjónustu á sumum flugleiðum í Evrópu. British Midland, TAP og Ryanair áforma að bjóða upp á þjónustuna seinna á árinu. Þýska flugfélagið Lufthansa sagði hins vegar í dag að þeir hefðu ekki í hyggju að taka þjónustuna upp . Talsmaður þess sagði að kannanir hefðu sýnt að mikill meirihluti flugfarþega væri mótfallinn því.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira