Í hópi bestu nýliða á iTunes 17. desember 2008 05:30 Söngkonan knáa er á lista iTunes í Bandaríkjunum yfir tíu bestu nýliðana í flokki þjóðlagatónlistar.fréttablaðið/anton
Tónlistarkonan Lay Low er á lista iTunes í Bandaríkjunum yfir tíu bestu nýliðana í flokki þjóðlagatónlistar. Þetta kemur fram á heimasíðu þessarar vinsælustu tónlistarveitu heims, þar sem fólk er jafnframt hvatt til að kaupa hennar nýjustu plötu, Farewell Good Night"s Sleep. „Þetta er alveg frábært og gefur góð fyrirheit fyrir árið 2009," segir Kári Sturluson, umboðsmaður Lay Low. „Það er tíu manna teymi hjá iTunes sem velur þessa árslista og það þykja víst ekki slæmar tvíbökur að lenda á þeim, enda fara 85 prósent af allri sölu á netinu í gegnum iTunes." Um sérlega góða kynningu er að ræða fyrir Lay Low sem hyggur á mikið tónleikahald erlendis á næsta ári til að fylgja plötunni eftir. Nýverið náði hún samkomulagi við Nettwerk Music Group um þriggja platna samning og mun hróður hennar því væntanlega aukast stórlega á næstunni. Auk þess að hita upp fyrir Emilíönu Torrini á tónleikaferð um Evrópu á næsta ári hefur Lay Low ákveðið að spila í Kaupmannahöfn í fyrsta sinn sjötta mars. Að auki hefur hljómsveit hennar, Benny Crespo"s Gang, verið boðið að spila á South By Southwest-hátíðinni í Texas á næsta ári. - fb
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira