Glæpasagnadrottning með barn á brjósti SB skrifar 26. júní 2008 21:32 Hanna Ólafsdóttir með Ólaf Gretti Valsson í fanginu og glæpasagnahefti Mannlífs í hendinni.
Það eru ekki mörg pör sem slökkva á sjónvarpinu til þess að sitja við kertaljós og skrifa glæpasögur. Valur Grettisson, blaðamaður og unnusta hans Hanna Ólafsdóttir, lentu í öðru sæti glæpasagnakeppni Mannlífs. Sagan um Torfa lögga var skrifuð þegar Hanna var á steypinum. "Ég hef rosalega mikinn áhuga á glæpasögum og Vali finnst gaman að skrifa. Við ákváðum því að sameina krafta okkar og hvíla okkur aðeins á sjónvarpinu," segir Hanna sem hélt á Ólafi Gretti, tveggja mánaða syni þeirra Vals, í fanginu þegar Vísir talaði við hana. Hanna segist alltaf hafa haft áhuga á glæpasögum. "Já, ég er mikill aðdáandi Ian Rankin og finnst Rebus æðislegur. Hann er eiginlega vinur minn, mig langar helst að skella mér á oxford bar í Edinborg og hitta hann!" Löggan í sögu Vals og Hönnu heitir Torfi. Hann er kaldryfjaður, þunglyndur og mikið fyrir sopann. Er þetta hinn íslenski Rebus? "Já, þeir eru nú ekkert svo ólíkar týpur. Báðir búnir að upplifa mikið gegnum starfið og brynja sig með kaldhæðni," segir Hanna og Valur heyrist kalla í bakgrunni. "Ekki gleyma að hann er líka kynþáttahatari" Hanna segist afar stolt af verðlaununum og útilokar ekki að Torfi lögreglumaður eigi eftir að birtast landsmönnum í bók innan skamms. "Ætli maður lofi ekki bara skáldsögu jólabókaflóðinu 2010," segir glæpasagnamamman Hanna - ný rödd í hinni íslensku glæpasagnaflóru.
Mest lesið Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Lífið Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Lífið Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Lífið Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Lífið Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Lífið samstarf Fleiri fréttir Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Gummi Ben mætti með Michelin-kokk Glænýr bóksölulisti: Skólastjóri Ævars Þórs skýtur kónginum ref fyrir rass Áfall að dóttirin ætti 44 árum eldri kærasta Ómar Úlfur nýr dagskrárstjóri Bylgjunnar Sveppi gerði fyrsta ógeðsdrykkinn í tuttugu ár fyrir Bjarna Ben Sjá meira