Innlent

Ölvaður á bremsulausum bíl

Lögreglan stöðvaði í gær og nótt þrjá ökumenn vegna ölvunaraksturs. Tæplega þrítugur karlmaður var stöðvaður í Árbæ en aksturslag hans vakti athygli lögreglumanna en maðurinn ók of hratt miðað við aðstæður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Ökumaðurinn þrætti ekki fyrir óábyrgan akstur en reyndi að segja sér til varnar að bíllinn væri bremsulaus. Við athugun á ökutækinu reyndist það vera rétt. Ökudólgurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð enda glapræði að aka drukkinn og í þokkabót á bremsulausum bíl. Ökumaðurinn má teljast heppinn að lögreglan skyldi ná að stöðva för hans áður en illa færi.

Til viðbótar voru tveir ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Í fórum annars þeirra fundust jafnframt ætluð fíkniefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×