Aron samdi við Coventry til þriggja ára Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. júní 2008 14:36 Aron Einar Gunnarsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Vilhelm
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur samið við enska B-deildarliðið Coventry til næstu þriggja ára. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi. „Ég fór í læknisskoðun í morgun og það gekk allt saman mjög vel. Ég skrifaði svo undir samninginn og verð orðinn leikmaður Coventry þegar félagið er búið að ganga frá öllum félagaskiptapappírunum við AZ í Hollandi." „Þetta er allt annað líf hér en í Hollandi og líst mér afar vel á þetta. Völlurinn tekur 30 þúsund manns í sæti og æfingasvæðið lítur mjög vel út." Aron Einar mun fara beint í aðalleikmannahóp félagsins. „Stefnan er að vinna sér sæti í byrjunarliðinu sem allra fyrst. Annars hefði ég ekki komið hingað." Knattspyrnustjóri liðsins er Chris Coleman sem þjálfaði áður Heiðar Helguson hjá Fulham. „Hann hafði samband við Heiðar og aðra til að fá upplýsingar um mig og ég held að þetta sé bara allt á mjög jákvæðum nótum." Félagið átti þó ekki góðu gengi að fagna í vetur og var í mikilli fallhættu. „Þetta félag var farið nánast á hausinn þegar nýr eigandi kom inn og hefur hann verið að breyta miklu hjá því. Framtíðin er því bara björt."
Mest lesið Elísa fór kílómetrana 80 á undir níu klukkustundum Sport Ný lið bætast við Körfubolti Spurður út í Adam Ægi: „Getur vel verið að við spjöllum við hann“ Íslenski boltinn Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Enski boltinn Argentína datt í lukkupottinn: Greið leið í undanúrslitin Fótbolti „Við þurfum bara að horfa á björtu hliðarnar“ Fótbolti Mikil tilþrif í mótorkrossinu á Akranesi Sport Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 3-0 | Blikar í bikarúrslit Íslenski boltinn Forseti Suður-Kóreu húðskammar „vanhæfan“ landsliðsþjálfara Fótbolti Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Enski boltinn Fleiri fréttir Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Sjá meira