Íhugaði ekki að hætta 28. desember 2008 16:21 Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, íhugaði ekki að segja af sér sem borgarfulltrúi og hætta afskiptum af stjórnmálum þegar hvað mest gekk á borgarstjórn Reykjavíkur fyrr á árinu. ,,Mér leið ekki þannig persónulega. Ég hef mikla ástríðu fyrir stjórnmálum," sagði Hanna Birna sem var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi fyrr í dag. Tíð meirihlutaskipti Undanfarið ár hafa átök í tengslum við borgarmálinn verið afar hörð. Bæði á milli flokka og innan flokka, sér í lagi Sjálfstæðisflokksins. Upp úr meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks slitnaði í október 2007. Við tók Tjarnarkvartettinn svokallaði og fór hann með meirihlutvald allt þar til Sjálfstæðisflokkurinn myndaði nýjan meirihluta með Ólafi F. Magnússyni í janúar fyrr á þessu ári. Flokkurinn sleit því samstarfi og myndaði meirihluta á nýjan leik með Framsóknarflokknum í ágúst og tók Hanna Birna við sem borgarstjóri. Persónuleg átök erfið Hanna Birna sagði að persónuleg átök á milli einstaklinga hafi verið einna erfiðust á tímabilinu. Að hennar mati hefur tíminn frá meirihlutaskiptunum í október 2007 verið lærdómsríkur. Auk þess hafi niðurstaðan verið farsæl. ,,Ég held að það hafi verið lærdómsferli bæði fyrir okkur sem voru að vasast í þessu og ekki síður pólitíkina." Meirihlutinn og minnihlutinn starfa saman Meiri ró virðist nú vera yfir borgarmálunum. Hanna Birna sagði að það væri fullkomið ofmat að segja að það væri henni einni að þakka. Í borgarstjórn starfi 15 hæfir einstaklingar drifnir áfram af hugsjón og vilja til að gera vel. Hanna Birna sagði að vinnulagi hafi verið breitt og minnihlutinn hafi verið reiðbúin að taka þátt í þeirri vinnu. ,,Síðan höfum við setið saman að öllum verkefnum og reynt að leysa þau sameiginlega. Tekið mark og mið á skoðunum hvers annars og ferðast þannig í gegnum þetta." Það hefur skilað sér að skilningur og traust er meira, umræðan er öðruvísi og árangurinn er betri, að mati Hönnu Birnu. Hægt er að hlusta á viðtalið hér.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Sjá meira