Árni ekki vanhæfur heldur Kjartan Þór 26. mars 2008 16:05 Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. MYND/GVA
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ og stjórnarmaður í Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar, er að mati Ríkisendurskoðunar ekki vanhæfur í sölu Þróunarfélagsins á eignum til eignarhaldsfélagsins Keilis þrátt fyrir að vera stjórnarformaður Keilis. Alls voru eignir seldar Keili fyrir 320 milljónir. Fram kemur í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á sölu eigna á gamla varnarliðssvæðinu að Árni, sem sati í stjórn Keilis í skjóli eignaraðildar Reykjanesbæjar, hafi átt óverulegan þátt í sölunni og þá hafi hann ekki átt persónulegra hagsmuna að gæta. Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélagsins.MYND/GVA Ríkisendurskoðun kemst hins vegar að því að Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélagsins, hafi verið verið vanhæfur til þess að taka þátt í undirbúningi og ákvörðunum um sölu á eignunum til Keilis, en hann var stjórnarmaður í Keili. Segir Ríkisendurskoðun að Kjartan hafi tekið virkan þátt í undirbúningi og frágangi á sölu á eignunum til Keilis og hafi samþykkt ásamt stjórarformanni Þróunarfélagsins tilboð fyrirtækisins. Ríkisendurskoðun kemst hins vegar að því að ekki sé hægt að líta svo á að sölusamningur sé ógildur vegna vahæfis Kjartans Þórs. Árni Mathiesen fjármálaráðherra.MYND/Vilhelm Ríkisendurskoðun fjallaði einnig um þá um tvær aðrar spurningar um hagsmunatengsl við sölu eigna á varnarliðssvæðinu. Annars vegar að Steinþór Jónsson, bæjarstjórnarmaður í Reykjanesbæ og samflokksmaður Árna Sigfússonar, væri stjórnarformaður BASE sem hefði keypt 22 eignir af Þróunarfélaginu fyrir um 715 milljónir króna. Segir Ríkisendurskoðun að undirbúningur sölunnar og ákvarðanir sem máli skiptu hafi fyrst og fremst verið í höndum framkvæmdastjóra og stjórnarformanns Þróunarfélagsins en Árni Sigfússon hafi átt litla aðild að því. Hins vegar fjallaði Ríkisendurskoðun um það að bróðir Árna Mathiesen fjármálaráðherra, Þorgils Óttar Mathiesen, sæti í stjórn Keilis og í stjórn Háskólavalla en þessi félög hefðu samanlagt átt milljarða viðskipti við Þróunarfélagið sem ynni í umboði fjármálaráðherra að sölu eignanna. Þá væri einn af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, Böðvar Jónsson, einnig aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Ríkisendurskoðun segir um þennan þátt málsins að með skilyrðislausu framsali stjórnvalda á valdi til að ráðstafa eignum á fyrrum varnarsvæðum í hendur Þróunarfélagsins og því að forsætisráðherra fer með forræði á hlut ríkisins í félaginu líti stofnunin svo á að hvorki fjármálaráðherra né aðstoðarmaður hans hafi nauðsynlegt vald eða heimildir til að taka þátt í ákvörðunum Þróunarfélagsins.
Tengdar fréttir Óheppilegt að sömu aðilar tengist Þróunarfélagi og kaupendum eigna Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar var fyllilega heimilt að selja eignir ríkisins á fyrrum varnarliðssvæði á Keflavíkurflugvelli án aðkomu Ríkiskaupa og bar ekki skylda til að bjóða þær út. 26. mars 2008 15:08 Mest lesið Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Erlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Fleiri fréttir Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma Sjá meira
Óheppilegt að sömu aðilar tengist Þróunarfélagi og kaupendum eigna Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar var fyllilega heimilt að selja eignir ríkisins á fyrrum varnarliðssvæði á Keflavíkurflugvelli án aðkomu Ríkiskaupa og bar ekki skylda til að bjóða þær út. 26. mars 2008 15:08