Innlent

Þungar áhyggjur af stöðu Tíbeta og andvaraleysi stjórnvalda

Mótmælendur við kínverska sendiráðið í dag hafa þungar áhyggjur af stöðu Tíbeta í Tíbet og andvaraleysis íslenskra stjórnvalda í þeim efnum.

 

Í ályktun sem samþykkt var á mótmælafundinum í dag segir: "Við skorum því á ríkisstjórn Íslands að mynda sér skoðun og koma henni á framfæri opinberlega. Þá skorum við jafnframt á ríkisstjórnina að svara eftirfarandi spurningum: Styður ríkisstjórn Íslands mannréttindabrot kínverskra stjórnvalda í Tíbet? Ef hún gerir það ekki, er ríkisstjórnin tilbúin að fordæma og hvetja til þess að mannréttindi verði virt í Tíbet á opinberum vettvangi, sem og í alþjóðasamfélaginu."

 

Ennfremur ályktaði fundurinn að þögn íslenskra yfirvalda, forsætisráðherra, utanríkisráðherra sem og forseta Íslands yrði að linna. Við viljum vita hug ykkar nú þegar, því mannréttindabrotin í Tíbet verða æ svæsnari. Í morgunn lýstu kínversk stjórnvöld því yfir að 100 þjóðir styðji aðgerðir þeirra. Erum við á þessum lista?

 

"Við förum þess á leit að ríkisstjórn Íslands taki af skarið og bjóði sig fram til að miðla málum á milli Tíbet og Kína til að finna varanlega lausn á vandamálum þeim er hrjá Tíbet", segir í ályktuninni.

 

"Við krefjumst þess jafnframt að rannsóknarnefnd á vegum S.Þ. verði tafarlaust hleypt inn í Tíbet til að komast að hlutskipti þeirra sem hafa verið handteknir og drepnir í tengslum við mótmælin í Tíbet undanfarið."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×