Innlent

Kínverskar konur handteknar með fölsuð vegabréf

Tvær kínverskar konur voru handteknar í Leifsstöð á föstudaginn langa þegar þær reyndu að komast inn í landið á fölsuðum vegabréfum. Konurnar eru á þrítugsaldri og framvísuðu þær suður-kóreskum vegabréfum sem búið var að falsa.

Þær voru dæmdar í 30 daga fangelsi fyrir brot sín og samkvæmt heimildum Vísis er líklegast að þeim verði vísað úr landi þegar þær hafa afplánað dóminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×