Fæðingar á Grænlandi færri en fóstureyðingar 29. desember 2008 03:15 „Svo hefur verið töluverð fræðsla,“ segir Matthías Halldórsson, starfandi landlæknir.
Fóstureyðingar á Grænlandi á árinu 2006 voru 1.030 miðað við hver 1.000 lifandi fædd börn. Þetta er langhæsta hlutfall fóstureyðinga á Norðurlöndunum að því er sjá má í Talnabrunni, fréttabréfi Landlæknis. Hlutfallslega næstflestar fóstureyðingar á Norðurlöndunum voru í Svíþjóð þar sem þær voru 340 á hverjar eitt þúsund fæðingar samkvæmt Norræna heilbrigðistölfræðiráðinu. Hlutfallið á Íslandi er 205 fóstureyðingar. Það er fimmtungur hlutfallsins á Grænlandi. Hér á landi fæðast um 4.300 börn á ári en fóstureyðingar eru um 900 talsins. Fóstureyðingar eru áberandi fæstar í Færeyjum en mjög fáar eru einnig í Finnlandi, eða aðeins 181 á hverja þúsund fædda. Matthías Halldórsson, starfandi landlæknir, segir að ekkert sé að marka tölurnar á Grænlandi því að svo margt sé öðruvísi í grænlenska samfélaginu en á hinum Norðurlöndunum. Því þurfi að taka Grænland út fyrir sviga og þá séu fóstureyðingarnar flestar í Svíþjóð. Matthías segir að Íslendingar standi frekar vel hvað fóstureyðingar varðar, fóstureyðingar séu ekki of margar hér og hafi heldur farið fækkandi síðustu árin fremur en hitt. Það sé meðal annars vegna neyðargetnaðarvarnarinnar sem kom fyrir nokkrum árum. „Svo hefur verið töluverð fræðsla, læknanemar hafa til dæmis farið í framhaldsskólana, og þetta hefur lagst á sveif hvort með öðru,“ segir hann.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Sjá meira