Verslunum ekki lokað í byrjun árs 28. desember 2008 18:56
Ekki stendur til að loka neinum búðum hjá stærstu verslanakeðjum landsins í byrjun árs. Þá eru uppsagnir eða launalækkanir ekki fyrirhugaðar. Ef spár sérfræðinga ganga eftir verður ein af hverjum tíu verslunum í London orðin tóm innan tveggja mánaða að því er kemur fram í grein Daly Telegraph. Telja sérfræðingar að framundan séu miklir erfiðleika í breskri verslun og eru umtalsverð afsláttartilboð nú strax eftir jól. Hér á landi kvíða menn nýja árinu hvað verslun varðar en forstjóri Haga, sem reka yfir 20 verslanir, þar á meðal Bónus og Hagkaup, segir þó ekki standa til að loka neinum verslunum fyrirtækisins. ,,Þetta verður þungt næstu mánuði en við erum ekki að loka, nei nei," segir Finnur Árnason forstjóri Haga. Mikill vöxtur hefur verið hjá lágvöruverslunum síðustu mánuðina. Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Kaupáss, sem á og rekur m.a. Krónuna og Nóatún, segir að 60% aukning hafi verið hjá Krónunni síðustu mánuðina miðað við sama tíma í fyrra. Fjórum verslunum Nóatún af ellefu hefur því verið lokað á árinu og breytt í Krónuverslanir og verður þeirri fimmtu, sem er í Hafnarfirði, breytt í janúar. En hvað með Haga? Finnur segir að staðan og er sé staðan óbreytt. Ekki stendur til að segja upp fólki hjá Högum eða Kaupási eins og stendur. NTC sem rekur 18 tískuverslanir á landinu. Engum búðum lokað í bráð, segir Svava Johansen, kaupmaður. ,,Nei það stendur ekki til eins og er," segir Svava og bætir við að hagrætt hafi verið í rekstri og innkaupum. Kaupmenn eru ánægðir með jólasöluna í ár. Svava segir að Íslendingar hafi get sér grein fyrir mikilvægi þess að versla heima og íslenskar vörur. Allir hagnist á því. ,,Mér finnst að Íslendingar eigi að vera bjartsýnir. Við höfum verið það og við eigum að vera það áfram."
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira