Grunur um íkveikju í fjölbýlishúsi í Breiðholtinu 16. mars 2008 18:53
Grunur leikur að kveikt hafi verið í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í morgun þar sem hátt í tvö hundruð manns búa. Engum varð meint af en íbúar í húsinu hafa farið fram á að íbúðin verði seld þar sem óregla sé á leigjendum þar. Allt tiltækt lið Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út rétt eftir klukkan tíu í morgun vegna elds í fjölbýlishúsi í Hrafnhólum í Breiðholti. Eldurinn kviknaði í íbúð á annarri hæð en húsið er átta hæða. Um í fimmtíu íbúðir eru í húsinu og hátt í tvö hundruð íbúar. Margir voru heima þegar eldsins varð vart en nokkur reyk lagði frá íbúðinni og inn í stigahúsið. Neyðarlínan sendi strax talskilaboð í síma allra sem skráðir eru til heimilis í húsinu og íbúarnir voru beðnir um að halda kyrru fyrir í íbúðum sínum þar til slökkviliðið tilkynnti um annað. Helga Kristín Sigurðardóttir, formaður Húsfélagsins Hrafnhólum 6-8, segir íbúum hafa brugðið mjög þegar þeir fengu skilaboðin. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og varð engum íbúa meint af. Íbúðin þar sem eldurinn kviknaði var mannlaus og rannsakar lögreglan eldsupptök. Grunur er um að kveikt hafi verið í íbúðinni þar sem eldur kviknaði á tveimur stöðum þar inni. Íbúðin er í útleigu á vegum Félagsbústaða en húsfélagið hefur farið fram á það um nokkurt skeið leigjendunum verði vísað úr íbúðinni og hún seld. Helga Kristín segir mikla óreglu hafa verið á íbúunum og oft hafi þurft að kalla til lögreglu vegna þeirra.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Lýsa eftir Írisi Elvu Tíu milljarða króna verk en ljósastýrð gatnamót Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Sjá meira