Innlent

Ráðuneyti getur ekki stöðvað framkvæmdir í Helguvík

Umhverfisráðuneytið getur ekki stöðvað byggingu fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Framkvæmdirnar geta hægt á stýrilækkunarferli Seðlabankans, en fjármálaráðherra segir þær nauðsynlega innspýtingu í efnahagslífið.

Bæjarstjórnir Reykjanesbæjar og Garðs veittu í gær Norðuráli leyfi til að hefja framkvæmdir við álverið í Helguvík og stefna menn suður frá á að hefja framkvæmdir á næstu vikum, þrátt fyrir að enn eigi eftir að ganga frá lausum endum í undirbúningi framkvæmdarinnar.

Umhverfisráðherra lýsti í gær furðu sinni á leyfisveitingunni og efaðist um réttmæti hennar þar sem málið er enn til umfjöllunar í ráðuneytinu. Umhverfisráðuneytið hefur þó ekki heimild til að koma í veg fyrir að framkvæmdir verði hafnar og samkvæmt heimildum fréttastofu getur kæra Landverndar sem liggur á borði ráðherra einungis frestað framkvæmdum, en ekki stöðvað þær.

En það eru fleiri sjónarmið en tæknilegar útfærslur framkvæmdarinnar og það eru efnahagsmálin. Fjármálaráðherra segist spenntur fyrir byggingu álversins og telur að hún komi til með að hafa góð áhrif á efnhag þjóðarinnar sem er í mikilli niðursveiflu.

Árni hefur ekki áhyggjur af því að bygging álversins haldi uppi stýrivöxtum hér á landi og segir að þeir fari lækkandi á næstu misserum.

Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur hjá ASÍ, er þó ekki sammála fjármálaráðherra. Hann segir að álversframkvæmdir séu ekki lausn á skammtímavandamáli og séu ekki til þess fallnar að flýta fyrir stýrivaxtalækkun. Ólafur Darri segir að álver geti eflaust komið þjóðarbúinu vel til lengri tíma litið, en sé ekki hugað vel að tímasetningu framkvæmdanna geti þær gert illt verra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×