Tveir látnir í óveðri í Bandaríkjunum 6. janúar 2008 09:28
Að minnsta kosti tveir eru látnir af völdum óveðurs sem geisar á Vesturströnd Bandaríkjanna. Hellirigning, snjór og sterkir vindar fylgja veðrinu. Snjóflóðaviðvaranir voru gefnar út í Sierra Nevada fjöllum þar sem einn og hálfur meter féll af snjó. Þá er varað við flóðum í suðurhluta Kaliforníu og aurskriðum. Meira en milljón heimili eru án rafmagns í Kaliforníu eftir óveður gekk yfir ríkið í gær. Tré rifnuðu upp með rótum og rafmangsstaurar féllu. Vegum hefur verið lokað og flug sums staðar felld niður. Í Nevada brast varnargarður vegna rigninga og vatn flæddi inn á 800 heimili. Björgunarsveitir unnu að því að koma fólki til hjálpar og notuðu meðal annars skólarútur til að flytja 3.500 manns af flóðasvæðinu. Snjór og kuldi auðvelda ekki aðstæður fólksins. Búist er við frekari snjókomu og köldu veðri í fjallendi. Herinn var sums staðar kallaður til með þyrlur og annan tækjabúnað. Rauði krossinn setti upp neyðarskýli fyrir ökumenn sem komust ekki leiðar sinnar. Flóðviðvaranir eru í gildi á stórum svæðum suðurhluta Kaliforníu, meðal annars stærstum hluta Los Angeles sýslu. Íbúar Orange sýslu sem urðu fyrir barðinu á miklum skógareldum síðasta haust hafa verið varaðir við flóðum og aurskriðum, en hellirigning hefur verið á svæðinu og spáð frekari úrkomu. Þrjú þúsund manns voru beðnir að yfirgefa heimili sín. Þá hafa stormviðvaranir verið gefnar út í Colorado þar sem búist er við að snjó kyngi niður. Búist er við frekari úrkomu fram til morguns en jafnframt að veðrið gangi eitthvað niður.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira