Enski boltinn

Leikmenn keyptir fyrir 75 milljarða

Robinho var dýrasti bitinn á leikmannamarkaðnum í sumar
Robinho var dýrasti bitinn á leikmannamarkaðnum í sumar

Félögin í ensku úrvalsdeildinni settu nýtt met í sumar þegar keyptir voru leikmenn fyrir 75 milljarða króna. Þetta er um 5 milljörðum hærri tala en verslað var fyrir í síðasta glugga.

Það er ráðgjafarfyrirtækið Deloitte sem birti þessar tölur, en eyðsluna er talið mega rekja beint til metsamninga tengdum sjónvarpsrétti á síðasta ári. Þess má geta að um 40% af þessari upphæð voru peningar sem úrvalsdeildarfélögin skiptu með sér í leikmannakaupum sín á milli.

Það vekur athygli að á meðan nokkur kreppa er á heimsmarkaðnum, skuli peningarnir engu að síður flæða í knattspyrnuheiminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×