Enski boltinn

Enskan ekkert mál fyrir Scolari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Luiz Felipe Scolari, verðandi knattspyrnustjóri Chelsea.
Luiz Felipe Scolari, verðandi knattspyrnustjóri Chelsea. Nordic Photos / AFP
Talsmaður Luiz Felipe Scolari, verðandi knattspyrnustjóra Chelsea, segir að hann muni ekki eiga í vandræðum með að tjá sig á ensku.

Frá því að tilkynnt var að Scolari myndi taka við Chelsea töldu margir að það kynni að vera vandamál að Scolari talaði ekki mikla ensku.

„Enskan verður ekkert vandamál fyrir hann," sagði talsmaðurinn Acaz Fellegger. „Felipe hefur þegar starfað í Kúvæt, Sádi-Arabíu og Japan. Í þessum löndunum notaði hann ensku í samskiptum sínum. Ég get fullvissað alla um að þetta verður ekkert vandamál fyrir hann."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×