Norski olíusjóðurinn er fyrirmynd alþjóðlegra fjárfesta 17. janúar 2008 09:27 Norski fáninn blaktir við olíuborpall. "
Siðareglur norska olíusjóðsins hafa haft mikil áhrif á fjárfesta víða um heim þegar kemur að fjárfestingum í fyrirtækjum. Við vitum að margir fjárfestar í Evrópu, Bandaríkjunum og í Kanada, taka sjóðinn til fyrirmyndar". Þetta kom fram á ráðstefnu norska fjármálaráðuneytisins sem haldin var í Osló í gær, undir yfirskriftinni Fjárfest í framtíðinni. Olíusjóður Norðmanna er stærsti lífeyrissjóður í heiminum, en hann hljóðar upp á rúmlega 20.000 milljarða íslenskra króna og er ætlað að standa straum af lífeyrisskuldbindingum komandi kynslóða.Samkvæmt siðareglum olíusjóðsins má einungis fjárfesta til langs tíma og mest 5% í hverju fyrirtæki. Sjóðurinn á nú í meira en 7.000 fyrirtækjum víða um heim. Sérstök siðanefnd útbýr lista yfir alþjóðleg fyrirtæki sem talin eru brjóta gróflega gegn mannréttindum, framleiða vopn eða ýta undir barnaþrælkun og veitir nefndin norska fjármálaráðuneytinu ráð um það hvaða fyrirtæki ber að útiloka frá sjóðnum."Markmiðið sjóðsins er vitaskuld að græða pening, en á sama tíma er brýnt að fjárfesta ekki í fyrirtækjum sem stríða gegn siðareglunum. Við viljum tryggja að peningarnir sem tilheyra norsku þjóðinni séu ekki notaðir í vafasömum tilgangi. Þegar við ákveðum að útiloka fyrirtæki frá sjóðnum, eins og til dæmis bandaríska fyrirtækið Walmart, vegna stórfelldra brota á vinnurétti starfsmanna þess í þróunarríkjunum, þá hefur það mikil áhrif á alþjóðamörkuðum, enda stærð og markaðsvirði olíusjóðsins gríðarlegt. Siðareglurnar stuðla að því að lyfta viðskiptasiðferði fyrirtækja á hærra plan og kannski breyta heiminum örlítið til hins betra í leiðinni," sagði Gro Nystuen, formaður siðanefndar norska olíusjóðsins.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira