Stefna Samfylkingarinnar skýr í Evrópumálum 27. desember 2008 12:45 Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar.
Forysta Samfylkingarinnar hefur ekki umboð flokksins til að sækja um aðild að Evrópusambandinu, segir Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Varaformaður Samfylkingarinnar segir augljóst að umræddur þingmaður hafi ekki mætt á marga landsfundi Samfylkingarinnar. Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður sjálfstæðisflokksins, skrifar á heimasíðu sína að hann hafi talið að umboð forystu Samfylkingarinnar væri afdráttarlaust í Evrópumálum. Hann segir að eftir eigi að skilgreina samningsmarkmið aðildarumsóknar í Evrópusambandið og því hafi forysta og formaður flokksins ekki það umboð sem ætla mætti af ummælum sem fallið hafa. Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir Ármann ekki fara með rétt mál. ,,Það er alveg ljóst að þessi þingmaður Sjálfstæðisfloksins hefur ekki mætt á marga landsfundi samfylkingarinnar," segir Ágúst Ólafur. Stefna flokksins sé skýr og á seinustu tveimur landsfundum, seinast vorið 2007, hafi varið samþykkt ályktun þar sem segir að stefna beri á aðildarviðræður. Í grein sem Stefán Jóhann Stefánsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, skrifaði í Morgunblaðið kom fram að á landsfundi flokksins í kjölfar hinnar svokölluðu póstkosningu haustið 2002 hafi verið skipaður 9 manna málefnahópur sem fékk það hlutverk m.a. að skoða ávinning Íslands af aðild að ESB og skilgreina helstu samningsmarkmið aðildarumsóknar. Ármann segir það vekja undrun að hópurinn hafi aldrei komið saman og því ljóst að engin samningsmarkmið séu til hjá Samfylkingunni. Ágúst Ólafur vísar þessu á bug segir segir að Samfylking hafi einn flokka gefið úr sérstaka bók um samningsmarkmiðin. Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra, sendi fjölmiðlum í morgun brot úr ályktun landsfundar Samfylkingar kosningvorið 2007. Hún sagði að borið hafi á skrifum pólitíkusa að undanförnu sem sýna þekkingarleysi á sögu og stefnu Samfylkingarinnar. Þar kemur fram að Samfylkingin vill að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu og hefji aðildarviðræður, unnið verði að víðtækri samstöðu um samningsmarkmið og að niðurstöður samninga verði bornar undir þjóðaratkvæði. ,,EES-samningurinn er bæði nauðsynleg forsenda og helsta ástæða þess efnahagslega ávinnings sem þjóðin hefur notið á undanförnum árum. Jafnaðarmenn voru í fararbroddi við gerð þess samnings. Stefna Samfylkingarinnar í Evrópumálum hefur frá upphafi byggt á traustu umboði frá flokksmönnum, eins og fram kom í vandaðri stefnumótun og atkvæðagreiðslu meðal flokksmanna allra um stefnu í Evrópumálum á árunum 2001-2003. Eitt brýnasta verkefni stjórnmálanna er að skapa atvinnulífi og fjölskyldum rekstrarumhverfi og starfsskilyrði sem búa í haginn fyrir áframhaldandi velsæld, bætt lífsgæði og aukinn stöðugleika. Íslensk heimili búa við hæstu vexti og hæsta matvælaverð í Evrópu. Fyrir vikið er vinnudagur hér lengri en í nokkru landi sem við viljum bera okkur saman við. Frekari útrás atvinnulífsins eru takmörk sett við núverandi aðstæður. Óstöðugleiki og gengissveiflur hamla vexti sprotafyrirtækja og draga úr tiltrú á grónum íslenskum fyrirtækjum á erlendum vettvangi. Aðild að Evrópusambandinu og aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu er nauðsynleg til að tryggja efnahagslegan stöðugleika til lengri tíma litið og skapa íslenskum heimilum og fyrirtækjum samkeppnishæft rekstrarumhverfi. Ísland á að vera fullgildur þátttakandi í Evrópusamstarfi. Ísland er nú þegar aðili að flestum þáttum Evrópusamstarfsins og því ástæðulaust að ætla annað en að aðildarviðræður gætu gengið greiðlega. Breyta þarf stjórnarskrá áður en aðild að Evrópusambandinu getur tekið gildi hér á landi, en sú staðreynd kemur ekki í veg fyrir að sótt sé um aðild og gengið frá aðildarsamningi. Upptaka evru er hins vegar þá fyrst möguleg þegar nauðsynlegum aga hefur verið komið á efnahagsstjórn í landinu," segir í ályktun Samfylkingarinnar sem Kristrún sendi fjölmiðlum.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Innlent Fleiri fréttir Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Sjá meira