Innlent

Ekki tilbúnir að ljúka loðnuvertíð

Loðnuflotinn er nú allur kominn í land en menn er þó ekki tilbúnir að lýsa því yfir að vertíðinni sé lokið.

Sighvatur Bjarnason, skip Vinnslustöðvarinnar, var það síðasta til að landa afla en það kom inn til Vestmannaeyja í gærmorgun með 500-600 tonn sem veiddust út af Snæfellsnesi. Sú loðna fór í hrognatöku og var unnið úr henni fram á kvöld.

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, býst við að loðnuflotinn verði í höfn yfir páskana en vill ekki slá því föstu að loðnuvertíðinni sé lokið. Hann minnir á að dæmi séu um loðnugöngur sem hafi verið að koma að Vesturlandi allt fram í aprílbyrjun. Menn ætli því að fylgjast með yfir páskana og reyna að afla frétta enda eigi menn enn óveiddan kvóta.

Búið er að veiða 143 þúsund tonn af 150 þúsund tonna kvóta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×