Nissan Navara innkallaður 27. febrúar 2008 11:58 Nissan Navara.
Bílaumboðið Ingvar Helgason ehf. hefur nú fyrir hönd Nissan í Evrópu hafið þjónustuinnköllun á pallbílum af gerðinni Nissan Navara. Bílarnir eru kallaðir inn til þess að endurstilla megi ræsibúnaðinn sem stjórnar því hvernig loftpúðar bílsins springa út við árekstur framan á hann. Endurstillingunni er ætlað að tryggja hraðari ræsingu loftpúðanna. Þetta er gert í kjölfar þess að Nissan Navara hlaut falleinkun í árekstrarprófun EuroNCAP sem framkvæmd var á dögunum. Bíllinn fékk svo slaka útkomu að hann var beinlínis talinn lífshættulegur og fékk hann eina stjörnu í prófinu. „Þjónustuinnköllunin nær til allra Navara-pallbíla af nýju gerðinni sem seldir voru frá byrjun árs 2005 til loka árs 2007," segir í tilkynningu frá Ingvari Helgasyni. „Eigendum er boðið að heimsækja Ingvar Helgason á Sævarhöfða 2, eða einhvern viðurkenndan þjónustuaðila, til þess að láta endurstilla ræsibúnaðinn." Ingvar Helgason mun hafa samband við alla eigendur Nissan Navara bréfleiðis til þess að tryggja að bílarnir sem um ræðir séu með þennan endurbætta hugbúnað. „Eigendurnir verða beðnir um að hafa samband við þjónustuver Ingvars Helgasonar við fyrsta hentugleika. Endurstillingin ætti að taka mjög skamma stund og er eigendunum að kostnaðarlausu." Þá segir að í fréttatilkynningu frá Nissan í Evrópu komi fram að fyrirtækinu sé ekki kunnugt um að nein óhöpp hafi orðið í tengslum við seldar bifreiðar.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sjá meira