Sextíu prósentum ungmenna boðin fíkniefni 27. febrúar 2008 11:25
Um sextíu prósentum ungmenna á aldrinum 18-20 ára, sem tóku þátt í könnun á vegum Ríkislögreglustjóra, hefur verið boðin fíkniefni. Það er álíka hátt hlutfall og árið 2004 þegar sams konar könnun var gerð. Það var Rannsóknarsetur í barna- og fjölskylduvernd við Háskóla Íslands sem vann könnunina en þar var forvitnast um viðhorf ungmenna til forvarnastarfs lögreglu og aðgengi að fíkniefnum. Mikill meirihluti jákvæður gagnvart lögreglu Um þrír af hverjum fjórum sem svöruðu könnuninni höfðu fengið einhverja fræðslu hjá lögreglu en það er nokkuð lægra hlutfall en árið 2004 þegar um 87 prósent svarenda höfðu fengið einhverja fræðslu hjá lögreglu. Flestir þeirra sem fengu fræðslu, eða um 73 prósent, sögðust hafa fengið fræðslu um umferðarreglurnar, 50 prósent um skaðsemi fíkniefna, 39 prósent um skaðsemi áfengis og fjórðungur um lögbrot, fórnarlömb og afleiðingar afbrota. Yfir sjötíu prósent ungmenna sögðust mjög ánægð eða frekar ánægð með fræðslu lögreglu en níu prósent voru frekar óánægð eða mjög óánægð. Sjötíu prósent sögðust jafnframt vera mjög eða frekar ánægð gagnvart lögreglunni en 10 prósent frekar eða mjög neikvæði. Rúmur þriðjungur veit vel hvernig á að nálgast fíkniefni Sem fyrr sagði hafði 60 prósentum svarenda verið boðin fíkniefni en í könnun árið 2004 var hlutfallið 62 prósent. Af þeim sem sögðust hafa verið boðin fíkniefni sögðust nærri tveir af hverjum þremur það hafa verið í partíi, um 41 prósent erlendis, 40 prósent í miðbænum, 39 prósent á skemmtistað, 30 prósent í framhaldsskóla og svipað hlutfall á á útihátíð. Þá sögðust um 38 prósent svarenda þekkja mjög eða frekar vel til þess hvernig nálgast mætti fíkniefni eins og hass, amfetamín, kókaín og e-töflur hér á landi en 55 prósent þekktu það frekar eða mjög illa. Rannsóknin byggðist á svörum 811 ungmenna. Tekið var 1200 manna úrtak úr þjóðskrá meðal fólks á aldrinum 18-20 ára og er svarhlutfall 68 prósent eftir því sem fram kemur á vef lögreglunnar.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Erlent Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Innlent Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Erlent Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Innlent Fleiri fréttir Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Gott að vera temmilega tortrygginn Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja Sjá meira