Sjálfsagt að skoða starfsemi Kópavogsbrautar 25. mars 2008 13:27 Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu. MYND/Hari „
Ef það eru einstaklingar að koma fram núna sem tjá sig um reynslu sem er erfið vegna einhverskonar ofbeldis finnst mér sjálfsagt að athuga það, rétt eins og gert var með Breiðavík," segir Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu. Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá þremur mönnum sem voru vistaðir sem börn og unglingar á upptökuheimilinu á Kópavogsbraut 9. Þeir telja mikilvægt að starfsemin þar verði rannsökuð rétt eins og Breiðavík því einangrun og barsmíðar hafi þar viðgengist. Í Breiðavíkurskýrslunni svokölluðu er meðal annars fjallað um upptökuheimilið á Kópavogsbraut. Bragi segir að sú nefnd sem sett var á laggirnar í tengslum við Breiðuvík hafi lagaheimildir til þess að skoða heimilið. „Miðað við þær fréttir og yfirlýsingar sem komu þegar nefndin skilaði af sér býst ég við að það sé í undirbúningi að skoða fleiri heimili. Hvernig það verður gert eða hver forgangsröðunin verður er eitthvað sem örugglega er verið að skoða." Bragi bendir þó á að starfsemin á Kópavogsbraut 9 hafi verið öðruvísi en sú sem var á Breiðavík. „Þetta var neyðarvistun og krakkar voru ekki vistaðir þarna lengi. Algengt var að unglingar væru þarna í allt frá nokkrum klukkustundum upp í nokkrar vikur í lengsta lagi. Starfsemin var hugsuð svipað og lokaða deildin á Stuðlum er í dag," segir Bragi sem vann greinargerð um heimilið í Breiðavíkurskýrslunni. Hann segir að samkvæmt lögum megi taka krakka sem eru að stefna eigin velferð í voða úr umferð og setja á lokaða deild þá samkvæmt beiðni barnaverndarnefndar eða forsjáraðila. „Á þessum tíma var hlutverk heimilisins þarna að aðstoða börn sem höfðu misst stjórn á eigin lífi. Húsakynnin voru lokuð í þeim skilningi að ekki var hægt að ganga þar út. Það er hinsvegar allt önnur ella hvað gerðist innan veggja þess."
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Sjá meira