Höfuðkúpa að líkindum erlend 25. mars 2008 12:36
Höfuðkúpan sem fannst við Meðalfellsvatn á páskadag er að öllum líkindum erlend og var eitt sinn í eigu læknis sem lést fyrir nokkrum árum. Lögreglan telur málið að mestu upplýst. Enn er þó eftir að rannsaka höfuðkúpuna nánar og aldursgreina hana en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu virðist málið liggja nokkuð ljóst fyrir. Höfuðkúpan var hluti af innanstokksmunum í hjólhýsi sem stóð við Meðalfellsvatn og fauk í vonskuveðri í janúar. Við það splundraðist það með þeim afleiðingum að innanstokksmunirnir dreifðust um svæðið. Það var svo á páskadag sem maður fann höfuðkúpuna þar sem hún lá innan um aðra hluti úr hjólhýsinu og gerði lögreglu viðvart. Eigandi hjólhýsisins hafði síðan samband við lögreglu og sagðist hafa fengið höfuðkúpuna að gjöf frá tengdasyni sínum. Tengdasonurinn hefði erft höfuðkúpuna frá afa sínum sem var læknir og lést fyrir nokkrum árum. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu telst málið að mestu upplýst. Líklegt er talið að höfuðkúpan sé erlend og hafi komið hingað til lands fyrir allmörgum árum. Frumrannsókn á höfuðkúpunni sýndi hins vegar að hún var úr konu eða barni sem lést fyrir 10 til 30 árum en tæknideild lögreglunnar vinnur nú að því að aldursgreina hana með nákvæmari hætti.
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Erlent Fleiri fréttir Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Sjá meira