Innlent

Forsetinn heimsækir verðlaunað nýsköpunarfyrirtæki

MYND/Hrönn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heimsækir í dag fyrirtækið 3X Technology á Ísafirði.

Fyrirtækið hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands árið 2006 fyrir ágætan árangur sem það hafði náð á skömmum tíma í sölu og markaðssetningu á sérhönnuðum tækjum og tækjalausnum fyrir matvælaiðnaðinn.

Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að árangur fyrirtækisins sýni hverju hugvit, þekking og tæki geti skilað. Starfsemi 3X sé gott dæmi um nýsköpun í atvinnulífi á landsbyggðinni.

Með forsetanum í för verður dómnefnd Útflutningsverðlaunanna og stendur heimsóknin frá klukkan 11-15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×