Sarkozy kvænist Bruni 2. febrúar 2008 13:28 Sarkozy og Bruni á forsíðu franska tímaritsins L'Express. MYND/AFP
Nicolas Sarkozy forseti Frakklands og Carla Bruni söngkona og fyrrverandi fyrirsæta gengu í hjónaband í París í dag. Þetta er haft eftir Francois Lebel borgarstjóra Parísar í frönskum fjölmiðlum en hann gaf hjónin saman. Talsmaður forsetans vildi ekki tjá sig um málið en vitni segja að athöfnin hafi farið fram í Elysee-höllinni sem er opinbert heimili forseta Frakklands. Ástarsamband Sarkozy við Bruni hefur orðið til mikilla getgáta frönsku pressunnar síðustu mánuði. Forsetinn skildi við fyrrverandi konu sína, Cecelia, í október síðastliðnum. Sarkozy er 53 ára og Bruni fertug. Þau voru gefin saman í viðurvist nánustu fjölskyldu og vina samkvæmt Lebel borgarstjóra. Hann bætti við að athöfnin hefði verið augnablik náinna tengsla. Hún hefði verið látlaus og augljós ástúð hefði ríkt á milli hjónakornanna. Bruni fæddist í Turin á Ítalíu 23 desember árið 1967. Foreldrar hennar eru auðkýfingurinn og klassíska tónskáldið Alberto Bruni og píanóleikarinn Marysa Borini. Fjölskyldan flutti til Frakklands þegar hún var barn. Í fjölmiðlum hefur Bruni verið lýst sem „mann-ætu" því hún hafi átt í ástarsamböndum við fjölda frægra manna eins og Eric Clapton, Mick Jagger, Donald Trump og Laurent Fabius fyrrverandi forsætisráðherra. Þá hefur komið fram að hún hafi átt í sambandi við útgefandann Jean-Paul Enthoven áður en hún fór að vera með syni hans, heimspekingnum Raphael Enthoven. Þau giftust og eignuðust son. „Ég lifi einlífi á tímabilum, en ég kýs fjölkvæni," sagði hún tímaritinu Figaro Madame fyrir ári síðan og bætti við: „Ástin endist í langan tíma, en ástríðan í tvær eða þrjár vikur."
Mest lesið Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Innlent Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Segir stefna í menningarslys á Birkimel Innlent Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Innlent Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Erlent Fleiri fréttir Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Tugir drepnir á meðan þau biðu eftir matarskammti Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Færeyingar vilja fullveldi Trump fundar með þjóðaröryggisráði Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax „Erum að horfa á eitthvað betra en vopnahlé“ Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Ætlaði að myrða tvo þingmenn til viðbótar Gerðu árás á sjónvarpshúsið í miðri útsendingu Þeim sem skaut þingmenn lýst sem kristilegum íhaldsmanni Fyrsta konan sem stýrir MI6 Trump vill að ICE spýti í lófana og handtaki fleiri ólöglega innflytjendur Tala látinna eftir flugslysið komin í 270 Skutu eldflaugum á víxl í alla nótt Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Hlupu frá Danmörku til Svíþjóðar Annar þingmaðurinn látinn og byssumannsins enn leitað Tíu drepnir í Ísrael og Írönum ráðlagt að rýma Minnst þrír latnir í Ísrael og Teheran í ljósum logum Tveir ríkisþingmenn skotnir á heimilum sínum Varnarmálaráðherra segir að Tehran muni brenna Tuttugu börn drepin í árás á íbúðablokk í Tehran Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Aukinn hraði í framsókn Rússa Minnst tveir drepnir í hefndarárásum Írana Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Segir Íran hafa farið yfir strikið Sjá meira