Innlent

Íslendingar geta ekki lagað stöðuna á markaðnum

Árni Mathiesen fjármálaráðherra leggur áherslu á að stöðuna á íslenska fjármálamarkaðinum megi rekja til atburða sem séu að gerast úti í heimi. Í samtali við Ísland í dag sagði Árni að Íslendingar gætu ekki haft áhrif á þá þróun. Árni vill ekki tilgreina nákvæmlega hvað þyrfti að gerast til þess að íslensk stjórnvöld gripu inn í atburðarrásina á markaðnum.

Í Íslandi í dag tók Edda Rós Karlsdóttir, yfirmaður Greiningadeildar Landsbankas, undir þau orð Árna um að staðan á alþjóðamarkaði skipti mestu máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×