Innlent

Kona á sjötugsaldri tekin fyrir lyfjaakstur

MYND/Guðmundur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók ellefu ökumenn úr umferð fyrir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Sjö voru stöðvaðir á laugardag og fjórir á sunnudag en þetta voru tíu karlar á aldrinum 19-51 árs og ein kona, 18 ára.

Á sama tímabili tók lögreglan fimm karlkyns ökumenn sem voru undir áhrifum fíkniefna. Þá var kona á sjötugsaldri tekin fyrir akstur undir áhrifum lyfja.

Fimmtíu og sex umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en eitt þeirra má rekja til ölvunaraksturs. Flest óhöppin voru minniháttar en í nokkrum tilvikum þurfti þó að flytja fólk á slysadeild. Í sjö tilfellum var um afstungu að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×