Ekki tímabært að segja til um hvort gripið verði til aðgerða 18. mars 2008 11:46
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ekki sé tímabært segja til um hvort ríkisstjórnin grípi til einhverra aðgerða vegna þróunar í efnahagslífinu. Hann neitaði að svara því hvort Seðlabankinn hygðist grípa til einhverra aðgerða. Hann hvetur fólk til að fara varlega. Í samtali við blaðamenn eftir ríkisstjórnarfund í morgun sagði forsætisráðherra ástandið hér á landi endurspegla stóra atburði úti í heimi. Hann benti á að fimmti stærsti fjárfestingarbanki Bandaríkjanna, Bear Stearns, hefði riðað til falls og því hefðu orðið sveiflur á alþjóðlegum mörkuðum. Gengið of hátt skráð Spurður út í gengi krónunnar, sem lækkað hefur mikið á síðustu dögum og vikum, sagði Geir að ljóst væri að gengið hefði verið of hátt skráð en menn sæju ekki fyrir endann á þróuninni, það er hvort um væri að ræða yfirskot nú eða viðvarandi ástand. Líkti Geir ástandinu við mann með faraldssjúkdóm sem margir aðrir hefðu fengið. Lítið væri hægt að gera en læknirinn ráðlegði mönnum gott fæði og að fara varlega með sig. Spurður um Seðlabankann sagði forsætisráðherra stjórnvöld vera í góðu samstarfi við hann en hann neitaði að svara spurningum um það hvort Seðlabankinn hygðist grípa til einhverra aðgerða vegna ástandsins. Sagði hann ástandið ekki bundið við Ísland. Ráðherra var einnig spurður út í eldsneytismál en eldsneyti hefur aldrei verið dýrara hér á landi. Svaraði hann því til að nefnd á vegum fjármálaráðherra væri að störfum og von væri að tillögum frá henni. Of snemmt að segja hvort kjarasamningar séu í hættu Um forsendur kjarasamninga sagði Geir að of snemmt væri að segja til um það hvort þeir væru í hættu en staðan ylli vissulega áhyggjum. Þá sagði hann um ástand heimilanna: „Það er ekki einfalt mál en ég hef oft varað fólk við því að taka erlend lán, sérstaklega neyslulán." Enn fremur sagði Geir að of snemmt væri að segja til um það hvort ríkisstjórnin gripi til einhverra aðgerða vegna gengismála. Hún hefði sárafá tæki til að stjórna gjaldeyrismálum. Geir sagði enn fremur að það hefði hlotið að koma að því að krónan lækkaði og benti hann á að það kæmi útflutningsgreinum til góða. Förum varlega Aðspurður hvort hann teldi að yfirvofandi væri langvarandi kreppuástand eins og Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hefði spáð fyrir um í gær sagði Geir að aðstæður hér á landi og í Bandaríkjunum væru ólíkar. Vestan hafs glímdu menn við vanda á húsnæðismarkaði þar sem 600 þúsund íbúðir væru óseldar. Menn byggju sig ekki undir langvarandi kreppu hér en „förum varlega," sagði Geir.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Sjá meira