Innlent

Ekki tímabært að segja til um hvort gripið verði til aðgerða

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ekki sé tímabært segja til um hvort ríkisstjórnin grípi til einhverra aðgerða vegna þróunar í efnahagslífinu. Hann neitaði að svara því hvort Seðlabankinn hygðist grípa til einhverra aðgerða. Hann hvetur fólk til að fara varlega.

Í samtali við blaðamenn eftir ríkisstjórnarfund í morgun sagði forsætisráðherra ástandið hér á landi endurspegla stóra atburði úti í heimi. Hann benti á að fimmti stærsti fjárfestingarbanki Bandaríkjanna, Bear Stearns, hefði riðað til falls og því hefðu orðið sveiflur á alþjóðlegum mörkuðum.

Gengið of hátt skráð

Spurður út í gengi krónunnar, sem lækkað hefur mikið á síðustu dögum og vikum, sagði Geir að ljóst væri að gengið hefði verið of hátt skráð en menn sæju ekki fyrir endann á þróuninni, það er hvort um væri að ræða yfirskot nú eða viðvarandi ástand. Líkti Geir ástandinu við mann með faraldssjúkdóm sem margir aðrir hefðu fengið. Lítið væri hægt að gera en læknirinn ráðlegði mönnum gott fæði og að fara varlega með sig.

Spurður um Seðlabankann sagði forsætisráðherra stjórnvöld vera í góðu samstarfi við hann en hann neitaði að svara spurningum um það hvort Seðlabankinn hygðist grípa til einhverra aðgerða vegna ástandsins. Sagði hann ástandið ekki bundið við Ísland. Ráðherra var einnig spurður út í eldsneytismál en eldsneyti hefur aldrei verið dýrara hér á landi. Svaraði hann því til að nefnd á vegum fjármálaráðherra væri að störfum og von væri að tillögum frá henni.

Of snemmt að segja hvort kjarasamningar séu í hættu

Um forsendur kjarasamninga sagði Geir að of snemmt væri að segja til um það hvort þeir væru í hættu en staðan ylli vissulega áhyggjum. Þá sagði hann um ástand heimilanna: „Það er ekki einfalt mál en ég hef oft varað fólk við því að taka erlend lán, sérstaklega neyslulán."

Enn fremur sagði Geir að of snemmt væri að segja til um það hvort ríkisstjórnin gripi til einhverra aðgerða vegna gengismála. Hún hefði sárafá tæki til að stjórna gjaldeyrismálum. Geir sagði enn fremur að það hefði hlotið að koma að því að krónan lækkaði og benti hann á að það kæmi útflutningsgreinum til góða.

Förum varlega

Aðspurður hvort hann teldi að yfirvofandi væri langvarandi kreppuástand eins og Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hefði spáð fyrir um í gær sagði Geir að aðstæður hér á landi og í Bandaríkjunum væru ólíkar. Vestan hafs glímdu menn við vanda á húsnæðismarkaði þar sem 600 þúsund íbúðir væru óseldar. Menn byggju sig ekki undir langvarandi kreppu hér en „förum varlega," sagði Geir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×