Ríkissjóður hagnaðist verulega á sölu Baldurs 26. febrúar 2008 16:49
Fjármálaráðuneytið segir að það hafi ekki geta selt ferjuna Baldur, sem sigldi á Breiðafirði, til annarra en Sæferða ehf. fyrr en eftir 2010 vegna samnings um rekstur skipsins. Hefði ráðuneytið ekki selt skipið hefði verðmæti þess orðið lítið við lok þess tíma. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ráðuneytinu í kjölfar umfjöllunar um sölu ferjunnar í byrjun árs 2006. Þá var Sæferðum seldur Baldur fyrir tæpar 38 milljónir króna en samkvæmt endurskoðun ríkisreiknings var gengið út frá því að um tveimur vikum síðar hefði ferjan verið seld úr landi fyrir tæpar 100 milljónir króna.Fjármálaráðuneytið segir í tilkynningu sinni að í samningi milli fyrirtækisins Sæferða og Vegagerðarinnar, sem gerður var 2005 um rekstur ferjunnar Baldurs, hafi verið gengið frá því að fyrirtækið sæi um rekstur ferjunnar á tímabilinu 2005 til ársloka 2010. Því hefði ríkið ekki geta selt ferjuna nema í samráði við Sæferðir.Sæferðir hafi hins vegar óskað eftir því að að kaupa skipið í þeim tilgangi að eiga síðar möguleika á að kaupa nýrra og hentugra skip til siglinganna. „Ferjuleiðin yfir Breiðafjörð hefur átt stöðugt vaxandi vinsældum að fagna sem ferðamannaleið og töldu forsvarsmenn Sæferða ehf. að hið 16 ára gamla skip, Baldur, myndi á engan hátt anna þeirri eftirspurn sem fyrir hendi var, sérstaklega yfir sumartímann. Mikilvægt var talið að leggja ekki stein í götu uppbyggingar ferðaþjónustunnar við Breiðafjörð og ganga því til samninga um sölu á skipinu til Sæferða ehf. Slíkt var einnig í samræmi við stefnu ríkisins að draga sig út úr rekstrinum strax að samningstíma loknum," segir ráðuneytið.Í ljósi þess að ríkið gat ekki selt ferjuna til annarra aðila en Sæferða ehf. fyrr en eftir 2010 hafi verið ákveðið að sérstaka heimild í reglugerð um um ráðstöfun eigna ríkisins, þar sem heimilað er að víkja frá hefðbundnu söluferli ríkiseigna.„Hefði ekki komið til sölu skipsins var talið að við lok leigutímans gæti verðmætið orðið lítið vegna aldurs þess og hertra reglna EU um öryggisbúnað farþegaferja. Verðmæti þess við söluna voru talin liggja á bilinu 30-80 milljónir króna. Við mat á skipinu var til þess horft að söluverðmæti færi eftir því hvort kaupandi gæti nýtt sér þann ísklassa sem skipið var hannað fyrir. Í ljósi þess að mikil óvissa var um verðmæti skipsins var samningurinn á þann veg að ríkið fengi, auk söluverðsins, hlutdeild af auknu söluverðmæti ef rekstraraðilar seldu það frá sér á hærra verði," segir ráðuneytið.„Í ljósi ofangreindra staðreynda og með hagsmuni ferðaþjónustunnar á Breiðafirði í huga var ákveðið í samráði við Vegagerðina og Samgönguráðuneytið að ganga til samninga við Sæferðir ehf. um sölu á ferjunni Baldri.Með þessari aðferð er ljóst að ríkissjóður hagnaðist verulega á sölu skipsins umfram það sem hefði orðið ef skipið hefði verið selt við lok leigutímans," segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Fleiri fréttir Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Sjá meira