Tollar og gjöld hamla netverslun og samkeppni 26. febrúar 2008 12:42
Tollar og gjöld á hluti sem pantaðir eru á netinu hamla netverslun Íslendinga og um leið samkeppni við innlenda verslun, segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Hann segir það hagsmunamál fyrir neytendur að lækka gjöldin. Sagt var frá ungum manni í fréttum Stöðvar 2 í gær sem hafði pantað sér sjö geisladiska á Amazon og rak í rogastans þegar hann áttaði sig á að diskarnir höfðu nánast tvöfaldast í verði á leið frá Amazon á pósthús Íslandspósts. Eftir að búið var að leggja á toll, virðisaukaskatt og tollmeðferðargjald bættust rúmlega þúsund krónur við hvern einasta disk. Tollmeðferðargjaldið rennur til Íslandspósts. Fréttastofa hefur fengið mikil viðbrögð við fréttinni og sögur frá fólki sem er ekki sátt við þessa miklu gjaldtöku. Formaður Neytendasamtakanna segir eðlilegt miðað við gildandi reglur að verð á t.d. geisladiskum allt að tvöfaldist á leið á pósthúsið. Hins vegar sé ljóst að þessi mikla gjaldtaka hamli því að Íslendingar nýti sér vefverslun eins og þeir ella gætu gert. Um leið komi þetta í veg fyrir mikilvæga samkeppni gagnvart innlendum seljendum. Tollar heyra undir fjármálaráðuneyti og Íslandspóstur undir samgönguráðuneyti. Aðspurður hvort hann vilji að viðskiptaráðherra beiti sér fyrir lækkun gjaldanna til að efla samkeppni við innlenda verslun segir Jóhannes að hann myndi fagna því að viðskiptaráðherra sem ráðherra neytendamála myndi ýta hressilega á í þessu máli.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fleiri fréttir Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Sjá meira