Vilja reglur um hámarksmagn transfitusýra í mat 26. febrúar 2008 11:07 Siv Friðleifsdóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar en hún hefur vakið athygli á málinu í umræðum á þingi. MYND/AP
Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verið farli að undirbúa reglur um að hámarksmagn viðbættra transfitusýra í matvælum verði tvö grömm í hverjum hundrað grömmum af fitumagni vörunnar. Fram kemur í greinargerð með tillögunni að mikil umræða hafi verið um skaðsemi transfitusýra á undanförnum árum, en slíkar fitusýrur auka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, offitu og sykursýki 2. Transfitusýrur myndast þegar olía er hert og er bent á að meðal vara sem mögulega innihalda transfitusýrur séu smjörlíki, steikingarfeiti, kökur og kex auk franskra kartaflna. Þá inniheldur djúpsteiktur skyndibitamatur, örbylgjupopp, snakk og sælgæti í mörgum tilvikum umtalsvert magn transfitusýra. Ísland í hópi með Austur-Evrópuþjóðum Bent er á rannsókn í Danmörku þar sem kannað var magn transfitusýra í völdum fæðuflokkum í nokkrum löndum og þar reyndist Ísland í áttunda sæti á lista 24 þjóða. Þannig reyndist mest transfitusýra í Ungverjalandi, eða að meðatali 42 grömm á hver 100 grömm og Tékklandi var hlutfallið 41 gramm. Á Íslandi reyndist það 35 grömm en minnst er hlutfallið í hinum norrænu ríkjunum og Sviss, eða á bilinu 0,4 til 16 grömm, minnst í Danmörku. Bent er á að hlutfallið hafi verið 30 grömm á hver 100 grömm í Danmörku árið 2001. Danir settu hins vegar árið 2003 reglur sem kveða á um að það feitmeti, sem reglurnar ná til, megi ekki innihalda meira en tvö grömm af transfitusýrum á hver hundrað grömm af fitu. „Það vekur óneitanlega athygli að Ísland skuli raða sér á bekk með Austur-Evrópuþjóðum og Bandaríkjamönnum í þessum efnum og tróna á toppnum þegar Norðurlandaþjóðirnar eru skoðaðar," segir einnig í greinargerðinni. Þá segir einnig að samkvæmt ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sé æskilegt að neysla transfitusýra fari ekki yfir 2 grömm á dag. Íslendingar skipi sér þó á bekk með þeim sem neyta mestrar hertrar fitu eða um 3,5 grömm sem er tæplega tvöföld sú neysla sem mælt er með. Danmörk sé fyrsta landið í heiminum til að setja takmarkandi reglur um iðnaðarframleiddar transfitusýrur í matvælum og gilda þær einnig um innflutt matvæli. „Með þingsályktunartillögu þessari er því beint til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að setja reglur, sambærilegar þeim dönsku, enda má ætla að fjölmargir Íslendingar séu í bráðri hættu vegna ofneyslu á transfitusýrum," segir að endingu í þingsályktunartillögunni.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fleiri fréttir Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Sjá meira