Viðskiptamógúlar og fjölmiðlafólk flykkist á sjó 16. janúar 2008 16:13 Róbert Marshall er meðal þeirra sem taka prófið.
Óvenju mikill áhugi er þessa dagana á skipstjórnarréttindum, og flykkjast íslendingar sem aldrei fyrr í pungapróf. „Ég hef nú alltaf lagt mig í líma að muna nöfn á nemendunum, en ég sá fram á það núna að ná því ekki," segir Kjartan Örn Kjartansson, kennari á skipstjórnarsviði Fjöltækniskóla Íslands, en í vetur útskrifast þaðan 550 nýir skipperar. Á venjulegu ári væri þessa tala nær hundrað en aukninguna segir Kjartan að megi rekja til breytinga sem urðu um áramót á þeim réttindum sem pungaprófið veitir. Gamla prófið veitti fólki réttindi á 30 brúttólesta skip. Nýja prófið er háð lengd skipanna, og mega þeir sem hófu námið eftir áramót ekki stýra skipi sem er lengra en tólf metrar að lengd. Kjartan segir þetta vissulega þýða einhverja rýrnun á réttindum. Þau nýju séu þó feikinóg til daglegs brúks, en eðlilega vilji fólk fá eins mikil réttindi og það geti. Fjöldi þekktra Íslendinga er meðal þeirra sem langar að míga í saltan sjó. Þar má telja parið Róbert Marshall, aðstoðarmann samgönguráðherra, og Brynhildi Ólafsdóttur, fjölmiðlafulltrúa Saga Capital. Það ku vera fleiri frá Saga Capital í náminu, þar á meðal Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri fyritækisins. Fréttamaðurinn Gissur Sigurðsson útskrifaðist skömmu fyrir jól og kollegi hans Haukur Holm klárar námið á næstunni. Það gera þeir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, Skarphéðinn Berg Steinarson fyrrverandi stjórnarmaður hjá 365, og Hreggviður Jónsson, forstjóri Vistor, einnig. Þá mun Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone, hafa útskrifast í fyrra.
Mest lesið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira