Milljónir Bandaríkjamanna ganga til kosninga í 24 ríkjum 5. febrúar 2008 22:41
Búist er við góðri kjörsókn víðast hvar verið í forkosningunum sem nú standa yfir í Bandaríkjunum. Íbúar 24 ríkja hópast nú á kjörstaði til þess að taka þátt í að velja forsetabrambjóðanda fyrir demókrata og repúblikana. Í kosningunum fá frambjóðendur úthlutað kjörmönnum sem á endanum munu síðan velja frambjóðenda. Um 42 prósent kjörmanna verða valdir í dag og er talið líklegt að niðurstöðurnar skeri úr um hver hljóti tilnefninguna hjá repúblikönum. Margt bendir til þess að úrslitin í nótt verði á þá leið að John McCain nái að sigra Mitt Romney og hljóta þar með tilnefningu síns flokks. Mitt Romney. Hjá rebúblikönum er aðferðin í forkosningunum yfirleitt sú að sá sem fær flest atkvæði fær alla kjörmenn þess ríkis. Málið er hins vegar flóknara hjá demókrötum sem hafa þann háttinn á að skipta kjörmönnum eftir hlutfallslegu atkvæðamagni. Mjög mjótt er á mununum á milli Hillary Clinton og Barack Obama samkvæmt könnunum og telja flestir stjórnmálaskýrendur að barátta þeirri muni standa fram á vor en síðustu ríkin velja sér kjörmenn í maí. John McCain. Eins og áður sagði er búist við góðri kjörsókn, en þó hefur borið á vandræðum með kosningavélar í Flórída auk þess sem langar biðraðir við kjörstaði í Georgíu hafa fælt fólk frá. Þá hefur veðrið verið með versta móti í nokkrum ríkjum og er það talið koma niður á kjörsókninni. Hillary Clinton og Bill er í bakgrunni. Nú þegar hefur Mike Huckabee verið lýstur sigurverari í Vestur Virginíu hjá repúblikönum. Fyrstu útgönguspár koma svo í fleiri ríkjum um eittleytið. Kjörstöðum lokar á miðnætti í Georgíu en klukkan eitt lýkur kosningu í ellefu ríkjum, þar á meðal í Illinois og Massachusetts. Klukkan hálf tvö lýkur kosningu í Arkansas og klukkan tvö koma fyrstu útgönguspár í sjö ríkjum, þar á meðal í New York og í Arizona. Barack Obama. Þessum Ofur-þriðjudegi, eða Super Tuesday lýkur svo klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma þegar kjörstöðum verður lokað í Kalíforníu.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira