Innlent

Sýknaður af ákæru um líkamsárás á þorrablóti

MYND/E.Ól

Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás á þorrablóti á Selfossi í janúar 2006 þar sem málið taldist fyrnt.

Manninum var gefið að sök að hafa ráðist á gæslumann á þorrablótinu og slegið hann í andlit og sparkað í hann þannig að gæslumaðurinn hlaut nokkra yfirborðsáverka.

Maðurinn játaði á sig árásina en þar sem um minni háttar líkamsárás var að ræða samkvæmt lögum fyrntist málið á tveimur árum. Var maðurinn því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins um refsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×