Innlent

Ásta fer fyrir nefnd um markaðssetningu íslenska hestsins

MYND/Vilhelm

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað Ástu Möller alþingismann formann nefndar um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis.

Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að nefndinni sé ætlað að meta hvernig staðið sé að kynningu íslenska hestsins, velta fyrir sér nýjum hugmyndum og leita leiða til að bæta árangur af úflutningsstarfinu. Jafnframt er nefndinni falið að skoða hvernig best megi nota hestinn í landkynningarstarfi og til að styrkja markaðssetningu íslenskra afurða og ferðaþjónustu erlendis.

Auk Ástu eru Freyja Hilmarsdóttir, Hulda Gústafsdóttir, Kristinn Hugason, Magnea Guðmundsdóttir, Pétur J. Eiríksson og Sveinbjörn Sveinbjörnsson í nefndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×