Innlent

Reiðibylgjan berst Birni til Slóveníu

Björn Bjarnason.
Björn Bjarnason.

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að þrátt fyrir að Alþingi hafi nýlega samþykkt hert ákvæði um þyngri refsingu ef ráðist væri á lögreglumann sjáist það ekki á nýföllnum dómi héraðsdóms. Hann skrifar á heimasíðu sína um dóminn yfir þremur Litháum sem kærðir voru fyrir að ráðast á lögreglumenn á Laugaveginum. Dómari sýknaði tvo þeirra og sá þriðji fékk 60 daga skilorðsbundinn dóm.

„Hingað út til Bled berst reiðibylgja vegna héraðsdóms," skrifar Björn sem staddur er á ráðstefnu í Slóveníu, „þar sem tveir árásarmanna á lögreglumenn á Laugaveginum voru sýknaðir og hinn þriðji fékk vægan dóm. Að tillögu minni samþykkti alþingi nýlega hert ákvæði um þyngri refsingu, ef ráðist væri á lögreglumann. Það kemur greinilega fyrir ekki í þessu máli."

Björn segir einnig að nú væri gott fyrir dómstólaráð að hafa komið á skipan, „sem tryggði, að niðurstaða dómara væri skýrð fyrir almenningi á viðeigandi hátt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×