Segist hafa farið að lögum í hvívetna við undirbúning álvers 13. mars 2008 14:20 Frá Helguvík. MYND/Pjetur
Norðurál segist hafa farið í hvívetna efir lögum og reglum um framkvæmdir við undirbúning álvers í Helguvík og segist hafa gert samninga um flestalla þætti málsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á félaginu.Eins og fram kom í gær samþykktu bæjarstjórnir Garðs og Reykjanesbæjar framkvæmda- og byggingarleyfi fyrir álver í Helguvík. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra lýsti furðu sinni þeirri ákvörðun og benti á að kæra Landverndar vegna álversins væri enn til umfjöllunar hjá ráðuneytinu.Norðurál segir í tilkynningu í dag að félagið hafi í fjögur ár unnið að undirbúningi álvers í Helguvík í mjög góðu samstarfi við sveitarfélög á svæðinu, orkufyrirtæki og opinberar stofnanir. Samningar hafi verið gerðir um svæði fyrir starfsemina, hafnaraðstöðu, orku og orkuflutning. Þá sé mati á umhverfisáhrifum lokið og búið að breyta aðal- og deiliskipulagi og byggingarleyfi hafi fengist í gær.Um kæru Landverndar, sem telur að Skipulagsstofnun hafi átt að meta umhverfisáhrif álversins í heild sinni, segir Norðurál að vísa eigi henni strax frá. Er bæði vísað til þess að kæran hafi komið alltof seint og þá hafi árið 2006 farið fram ítarlegt samráðsferli vegna þessa atriðis að frumkvæði Skipulagsstofnunar með þáttöku Umhverfisstofnunar, orkuframleiðenda, sveitarfélaga og fleiri aðila. Niðurstaða þessa ferlis hafi verið að meta ekki allar framkvæmdir tengdar álverinu saman.Þá er bent á að álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum álversins sæti ekki kæru til ráðherra og þar sem byggingarleyfi byggi á áliti Skipulagsstofnunar „verður ekki séð að umrædd kæra hafi nein áhrif á útgáfu byggingarleyfis og hefur Norðurál því haldið áfram vinnu við undirbúning verkefnisins samkvæmt áætlun," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Innlent Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Erlent Fleiri fréttir Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Sjá meira