Fjörutíu ára samráð á olíuverði til ÍSAL 13. mars 2008 06:00 Ísal Olíufélögin Skeljungur, Olís og Olíufélagið, áður Ker, höfðu með sér samráð um viðskipti við ÍSAL á árunum 1993 til og með meirihluta árs 2001. „
Tek heils hugar undir þetta. Óþolandi glannaskapur, svona á að afhenda yfir borð eða í mesta falli boðsent til JH [Jóns Halldórssonar]," sagði Einar Benediktsson, forstjóri Olís, eftir að Kristján B. Ólafsson, fyrrverandi fjármálastjóri Olís, hafði sent honum skilaboðin: „Fékk inn á borð fax frá Shell vegna Ísals-útboðs. Skil ekki að Shell sendi fax út af verðum í þessu útboði, það er allt of varasamt." Þetta kemur fram í skýrslu samkeppnisyfirvalda vegna samráðs olíufélaganna en fyrrnefnd samskipti áttu sér stað 12. september 1997. Þá undirbjuggu starfsmenn olíufélaganna Skeljungs, Olís og Olíufélagsins, nú Kers, samráð fyrir útboð vegna viðskipta við ÍSAL. Mál ÍSAL gegn olíufélögunum, sem meðal annars byggir á samráði félaganna fyrir útboðið 1997, var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Aðalkrafa ÍSAL nemur tæplega 187 milljónum króna. Til vara krefst ÍSAL 126 milljóna, 79 milljóna eða bóta að álitum, allt eftir því hvaða forsendum héraðsdómur gefur sér. Fram að árinu 1993 þegar ný samkeppnislög tóku gildi sem ætlað var að efla samkeppni á markaði hafði verið í gildi samkomulag olíufélaganna um viðskipti við ÍSAL frá því 8. mars 1967. Samkvæmt því skiptu olíufélögin greiðslum ÍSAL vegna olíuviðskipta á milli sín. Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins segir meðal annars: „Gögn málsins sýna með skýrum hætti að olíufélögin hafa skipt með sér sölu Skeljungs til ÍSAL frá 1969 til 2001. Í þessu fólst einnig að olíufélögin höfðu samráð um verð á því eldsneyti sem selt var ÍSAL. Í umfjöllun um þessi mál í skýrslunni er meðal annars vitnað til tölvupóstsamskipta starfsmanna Skeljungs og Olís árið 1996. Þar segir: „Á morgun föstudag, verða viðræður við ÍSAL um endurnýjun viðskiptasamnings, út árið 1996. Í núverandi viðskiptasamningi er afsláttur á svartolíu kr. 60 pr. tonn, frá gamalli tíð, sem ekkert hefur breyst undanfarin ár. Við þurfum að endurskoða þennan afslátt og líklega bæta eitthvað við grunninn til þess að þeim finnist þeir einhvers njóta með hliðsjón af magni (þeir vita að sjálfsögðu ekki um skiptisölu)." Með skiptisölu er átt við skiptingu á framlegð af viðskiptunum. Guðrún Johnsen, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, vinnur að matsgerð fyrir hönd ÍSAL í málinu og var því frestað til 8. maí þar sem vinnu við matsgerðina er ekki lokið. Lögmenn olíufélaganna voru ekki viðstaddir þegar málið var tekið fyrir í gær.
Mest lesið Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Sérveitin í aðgerð á Selfossi Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Fleiri fréttir Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin í aðgerð á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Sjá meira