Ummæli Jóns um flugelda út í hött 28. desember 2008 13:45 Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar,
Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, segir að ummæli Jóns Magnússonar, þingflokksformanns Frjálslynda flokksins, um að fólk eigi að sleppa því að kaupa flugelda séu kjánaleg og út í hött. Jón var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi í morgun og þar hvatti hann almenning til að spara og kaupa ekki flugelda þetta árið. Með flugeldakaupum væri fólk að henda peningum. ,,Ég skil áhyggjur þingmannsins en mér fannst alveg út í hött að byrja á því að ráðast á flugeldanna sem er vitað að séu stærsta og mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitanna og kjölfestan í gleði barna um áramótin," segir Kristinn. Nær hefði verið ef Jón hefði stungið upp á að fólk keypti minna af áfengi um áramótin. ,,Þetta eru náttúrulega kjánaleg ummæli hjá þingmanninum og alveg út í hött." Flugeldasalan hófst í dag ,,Með því að kaupa flugelda hjá sínum björgunarsveitum er fólk að efla björgunarsveitir í eigin byggðalagi," segir Kristinn. Árleg flugeldasala Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefst í dag. Kristinn segir að flugeldasalan standi undir rekstri og fjárfestingum björgunarsveita á öllu landinu. ,,Þetta er okkar langstærsta fjáröflun. Hún skiptir gríðarlega miklu máli." Fjölmargir sölustaðir Samkvæmt lögum ekki er heimilt að selja flugelda nema frá 28. desember og fram að þrettánda. Sölustaðir eru fjölmargir en til marks um það má þess geta að flugeldamarkaðir björgunarsveitannar eru á 112 stöðum um land allt. Þar á bæ eiga menn von á samdrætti í sölu frá því í fyrra en þá var metár í sölu flugelda. Framboð aukið Helstu nýjungar eru fjórar tertur, Víkingatertan, sem skreytt er mynd af útrásarvíkingum landsins, Bankatertan, með bankamönnum, Stjórnmálatertan, með stjórnmálamönnum og Íslandstertan með íslenskum almenningi. Halldór Bjarnason teiknaði myndirnar sem prýða nýju terturnar. ,,Þetta er meira til gamans gert. Við erum að auka framboðið en við verðum áfram með Sturlungatertur," segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, aðspurð hvort hún haldi að landsmenn hafi áhuga á nýju tertunum. Ólöf segir að fólk þurfi ekki að vera útrásarvíkingar til að hafa efni á nýju Víkingatertunni.
Tengdar fréttir Þingmaður hvetur fólk til að kaupa ekki flugelda Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, hvetur fólk til að spara og kaupa ekki flugelda þetta árið. Með flugeldakaupum sé fólk að henda peningum. Hann var gestur Sigurjóns Egilssonar í þættinum Sprengjusandi í morgun þar sem meðal annars rætt um hvernig almenningur getur sparað. Auk þess talaði Jón fyrir því að fólk minnkaði gosdrykkju sína. Jón var eitt sinn formaður Neytendasamtakanna. 28. desember 2008 11:12 Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Sjá meira
Þingmaður hvetur fólk til að kaupa ekki flugelda Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, hvetur fólk til að spara og kaupa ekki flugelda þetta árið. Með flugeldakaupum sé fólk að henda peningum. Hann var gestur Sigurjóns Egilssonar í þættinum Sprengjusandi í morgun þar sem meðal annars rætt um hvernig almenningur getur sparað. Auk þess talaði Jón fyrir því að fólk minnkaði gosdrykkju sína. Jón var eitt sinn formaður Neytendasamtakanna. 28. desember 2008 11:12