Þarf að bregðast við sjálfstæðisyfirlýsingu Kosovo 4. febrúar 2008 12:13
Boris Tadic var í gær endurkjörinn forseti Serbíu. Fyrsta verkefni hans verður bregðast við yfirvofandi sjálfstæðisyfirlýsingu í Kósóvó héraði. Þeirri þróun eru Serbar andsnúnir. Fulltrúar Evrópusambandsins munu hafa varpað öndinni léttar í morgun þegar ljóst var að Tadic hafi haf sigur í seinni umferð forsetakosninganna og þar með fellt frambjóðanda þjóðernissinna, Tomislav Nikolits. Sá síðarnefndi er fyrrverandi bandamaður Slóbódans Milosevic og óttuðust því margir afturhvarf til fyrri tíma yrði hann kjörrinn. Tadic er hlynntur nánari samvinnu við Evrópusambandið en Nikolits leit frekar í austur, og vildi aukið samstarf við Rússa. Tadic vann nauman sigur - fékk fimmtíu og eitt prósent atkvæða, Nikolic fjörutíu og sjö prósent. Forsetaembættið er að mestu táknrænt í Serbíu. Forsetinn er þó æðsti yfirmaður hersins og hefur töluvert að segja um utanríkismálastefnu landsins. Þess vegna var litið svo á að kosningarnar í gær væru mikilvægur áfangi í leið Serbíu inn í Evrópusambandið en formlegt umsóknarferli hófst 2005. Erfitt verkefni bíður forsetans. Yfirvofandi sjálfstæðisyfirlýsing Albana í Kosovo-héraði. Báðir forsetaframbjóðendur lýstu sig harðlega andvíga henni í kosningabaráttunni. Sameinuðu þjóðirnar hafa stjórnað héraðinu síðan 1999 þegar loftárásir Atlantshafsbandalagsins, undir forystu Bandaríkjamanna, hröktu herlið Serba þaðan. Serbar voru sakaðir um harkalegar árásir á aðskilnaðarsinna Albana. Bandaríkjamenn og flest ríki ESB styðja sjálfstæði héraðsins. Rússar eru andvígir.
Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Innlent Samþykktu að víkja liðhlaupum úr Sjálfstæðisflokknum úr nefndum og ráðum Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Skárri staða í Álasundi Innlent Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Erlent Umsókn Samhjálpar samþykkt en afgreiðslu frestað um viku Innlent Fleiri fréttir Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Sjá meira