Neysla Íslendinga eykst enn 11. mars 2008 15:27 Íslendingar eyddu meira í dagvöru í febrúar en á sama tíma í fyrra. Mynd/ Rósa
Velta í dagvöruverslun jókst um 18% í febrúar síðastliðnum miðað við sama mánuð árið áður, ef miðað er við breytilegt verðlag. Á milli mánaðanna janúar og febrúar jókst velta dagvöruverslana um 3,4% á breytilegu verðlagi og um 2,5% á föstu verðlagi. Verð á dagvöru hækkaði um 0,9% frá janúar til febrúar. Óvenjulegt er að raunaukning verði á veltu dagvöruverslana á milli janúar og febrúar. Þetta hefur ekki gerst frá því að Rannsóknasetur verslunarinnar hóf að birta þessar tölur árið 2002.Áfengissala jókst Sala áfengis jókst um 20,1% í febrúar miðað við sama mánuð árið áður á breytilegu verðlagi og um 18,4% föstu verðlagi. Í febrúar var velta áfengisverslunar 28,2% meiri en í janúar þar á undan miðað við breytilegt verðlag og á föstu verðlagi var aukningin 25,6%. Þessi aukning á áfengissölu milli janúar og febrúar er tvöfalt meiri en áður hefur sést frá árinu 2002.Velta í fataverslun jókst Veltan Í fataverslun jókst um 7,3% í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra á breytilegu verðlagi en minnkaði um 3,3% á föstu verðlagi. Veltan minnkaði um 23,6% í febrúar miðað við janúar þar á undan á breytilegu verðlagi og um 30,9% á föstu verðlagi. Skóverslun jókst í febrúar um 12,8% á milli ára en minnkaði um 23,6% ef miðað er við janúar þar á undan á breytilegu verðlagi. Verð á fötum í febrúar hækkaði um 10,9% frá því í febrúar í fyrra en verð á skóm hækkaði um 18,3% á sama tímabili samkvæmt verðmælingu Hagstofu Íslands. Greinilegt er á þessum tölum að útsölur sem hófust í janúar var lokið í febrúar. Í febrúar minnkaði velta í húsgagnaverslun um 11,1% á breytilegu verðlagi miðað við janúar á undan og um 12,4% á föstu verðlagi. Samanlögð velta í þeim flokkum smásöluverslunar sem mælingar Rannsóknaseturs verslunarinnar ná til jókst um 19,7% á milli febrúar á þessu ári og febrúar í fyrra á verðlagi hvers árs.Hlaupár hefur áhrif á veltu Rannsóknarsetur verslunarinnar segir að ein skýring þess að velta í dagvöruverslun hafi aukist á milli janúar og febrúar sé að í ár sé hlaupár sem feli í sér þá óvenjulegu staðreynd að í febrúar hafi verið fimm föstudagar en fjórir í janúar. Samt sem áður virðist aukin velta á tveimur fyrstu mánuðum ársins miðað við árið áður vera í samræmi við aðrar vísbendingar um aukna einkaneyslu. Þannig hafi kreditkortavelta heimilanna 26,6% verið meiri í janúar sl. en í janúar í fyrra. Þá hafi verið 38,1% aukning á nýskráningum bíla í janúar-febrúar miðað við sömu mánuð í fyrra.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira