Lífið

Ásdísi boðið að hanna gallabuxnalínu

MYND/ArnoldStúdio
Aðstandendur keppninnar Is She Hot staðfestu í nótt það sem marga hafði grunað. Ásdís Rán hafði unnið þessa lotu Is She Hot? keppninnar, og þar með öðlast þáttökurétt í áströlskum raunveruleikaþætti, þar sem sigurlaunin eru milljón dollarar.

Ásdís var að vonum ánægð þegar vísir náði tali af henni. „Ég er bara mjög fegin. Nú hef ég nægan tíma til að koma mér í form fyrir keppnina," sagði Ásdís, en keppnin fer fram í janúar á næstu ári. Hún leitar nú að styrktaraðilum til að taka þátt í fegrunarátakinu, en það er að ýmsu að huga, líkamsrækt fæðubótarefnum, trimform og hinum ýmsu fegrunarleiðum öðrum.

Það er fleira en keppnin góða í pípunum. Gallabuxnaframeiðandinn D.Brand hefur beðið Ásdísi að hanna gallabuxnalínu fyrir fyrirtækið. Ekki hefur verið gengið frá samningum, en ef af verður, verður línan markaðssett í Skandinavíu. Að sögn Ásdísar er fyrirtækið er ungt, en vinsælt hjá fræga fólkinu í Svíþjóð.

Þá er Ásdís einnig á fullu að sinna Hawaiian tropic keppninni, sem hún sér um á Íslandi, í Svíþjóð og Noregi, fyrir utan það náttúrulega að vera þriggja barna móðir. Aðspurð hvort það verði ekki erfitt að vera frá í mánuð þegar tökur á þættinum fara fram segir hún svo ekki vera. „Ég er að spá í að taka mér frí frá þessu venjulega og gera það sem mig langar til að gera. Ég held líka að ég sé á aðeins betri launum ef ég vinn þessa keppni," segir Ásdís hlæjandi. Sigurlaunin samsvara 75 milljónum íslenskra króna nú, og hafa hækkað töluvert undanfarið. „Ég gleðst yfir gengisfallinu. Vinningurinn hækkar á hverjum degi," segir Ásdís, og bætir við að ef svo fari að hún vinni muni hún eyða peningunum á Íslandi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.