Enski boltinn

Barry fer ekki til Liverpool nema fyrir rétta upphæð

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gareth Barry.
Gareth Barry.

Martin O'Neill hefur ítrekað að fyrirliðinn Gareth Barry verði ekki seldur til Liverpool nema félagið greiði þá upphæð sem Villa sættir sig við fyrir leikmanninn.

Aston Villa refsaði Barry í gær fyrir að veita dagblaði í Englandi viðtal þar sem hann gagnrýndi Martin O'Neill, knattspyrnustjóra liðsins. Honum var bannað að mæta til æfinga hjá Villa.

O'Neill segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með að Barry ákvað að vera ekki áfram með Aston Villa heldur vill hann ganga til liðs við Liverpool. Talið er að Villa vilji fá um átján milljónir punda fyrir Barry.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×