Enski boltinn

Benítez vill fá David Villa

Elvar Geir Magnússon skrifar
David Villa með Reina, markverði Liverpool, eftir að Spánn varð Evrópumeistari.
David Villa með Reina, markverði Liverpool, eftir að Spánn varð Evrópumeistari.

Rafa Benítez viðurkennir að David Villa sé á óskalista sínum nú þegar Peter Crouch er á förum til Portsmouth. Villa skoraði fjögur mörk fyrir spænska landsliðið á Evrópumótinu.

„Við vitum allt um Villa. Hann er á okkar lista. Það verður samt líklega erfitt að fá hann," sagði Benítez. Villa skoraði 18 deildarmörk fyrir Valencia á síðasta tímabili.

Villa hefur sýnt það með Spáni að hann nær mjög vel saman með Fernando Torres.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×