Enski boltinn

Eto'o gekkst ekki undir læknisskoðun hjá Arsenal

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Samuel Eto'o, leikmaður Barcelona.
Samuel Eto'o, leikmaður Barcelona. Nordic Photos / AFP
Umboðsmaður Samuel Eto'o segir að þær fregnir sem hafa birsti í enskum miðlum um að Eto'o sé við það að semja við Arsenal séu rangar.

Ensku blöðin hafa haldið því fram að Eto'o hafi þegar gengist undir læknisskoðun hjá Arsenal. Jose Maria Mesalles, umboðsmaður hans, tók fyrir það.

„Það er algerlega rangt. Það er nákvæmlega ekkert hæft í því," sagði Mesalles.

Spænskir miðlar hafa einnig greint frá því að Emmanuel Adebayor hafi gengið frá samkomulagi við Barcelona um að ganga til liðs við félagið. Adebayor er hins vegar samningsbundinn Arsenal.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×