Þriðja tap Hull í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. nóvember 2008 17:02 Matthew Taylor skoraði sigurmark Bolton í dag. Nordic Photos / Getty Images
Hull tapaði í dag sínum þriðja leik í röð í ensku úrvalsdeildinni er liðið tapaði fyrir Bolton á heimavelli, 1-0. Bolton hoppaði upp um níu sæti í deildinni með sigrinum. Þá vann Everton sigur á West Ham á útivelli, 3-1, þökk sé þremur síðbúnum mörkum. Auk þess vann Portsmouth sigur á Sunderland á útivelli, 2-1. Matthew Taylor skoraði sigurmark Bolton á 50. mínútu í dag eftir að varnarmenn Hull reyndu að hreinsa í burtu hornspyrnu Bolton. Þetta var þriðja tap Hull í deildinni en nýliðarnir byrjuðu einkar vel í haust. Liðið heldur þó sjötta sætinu en Everton er nú tveimur stigum á eftir Hull, þökk sé ótrúlegum sigri á West Ham í dag. Varamaðurinn Jack Collison kom West Ham yfir á 63. mínútu leiksins og var ekki mikið útlit fyrir annað en að það myndi reynast sigurmark leiksins. Á 83. mínútu jafnaði svo Jolean Lescott metin fyrir Everton með skalla eftir fyrirgjöf Louis Saha. Aðeins mínútu síðar var Saha sjálfur að verki en hann skoraði með skoti sem hafði viðkomu í varnarmanni West Ham. Saha innsiglaði svo ótrúlegan 3-1 sigur á West Ham með góðu skoti á 87. mínútu og urðu það lokatölur leiksins. Everton er sem fyrr segir í sjöunda sæti deildarinnar með átján stig. West Ham er því enn með þrettán stig í ellefta sæti deildarinnar. Portsmouth kom sér upp í áttunda sæti deildarinnar með sigrinum á Sunderland sem er í sautjánda sæti með tólf stig. Bolton hoppaði úr átjánda sæti deildarinnar í það níunda með sigrinum en liðið er með fjórtán stig. Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn fyrir Bolton en Heiðar Helguson sat á varamannabekk liðsins. Djibril Cisse kom Sunderland yfir gegn Portsmouth strax á fjórðu mínútu leiksins en Nadir Belhadj jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks. Það var svo á lokamínútu leiksins að El Hadji Diouf braut á Glen Johnson í vítateig heimamanna og tryggði Jermain Defoe Portsmouth sigurinn með marki úr vítaspyrnu. Hermann Hreiðarsson var ekki í leikmannahópi Portsmouth í dag.
Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Handbolti Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira