Neydd til að fjarlægja geirvörtuhringi með töng 31. mars 2008 14:32 Myndin tengist ekki þessari frétt. MYND/AP
Kona, sem neydd var til að fjarlægja skrauthringi úr geirvörtum sínum með töng við vopnaleitarhlið í Texas, krefst afsökunarbeiðni frá Samgönguöryggismiðstöð Bandaríkjanna. Atvikið átti sér stað á flugvellinum í Lubbock í Texas í febrúar. Tildrög þess voru þau að málmleitartæki gaf merki um að konan, Mandi Hamlin, bæri málmhlut innanklæða en hún hefur skreytt líkama sinn með fjölda hringja og pinna í svokölluðum „piercing"-stíl. „Þetta kom mér algjörlega á óvart og ég fann til lítilsvirðingar, ótta og reiði," sagði Hamlin um atvikið sem er nú í höndum lögmanns hennar, Gloriu Allred. Framhald málsins var að Hamlin var beðin um að fara afsíðis og fjarlægja hringina úr geirvörtunum, ellegar færi hún ekki um borð í flugvélina. Hafi hún náð öðrum hringnum úr vandræðalaust en hinn hafi setið sem fastast. Segir Hamlin að öryggisverðir hafi þá komið með töng og skipað henni að fjarlægja hringinn með henni. Talsmenn Samgönguöryggismiðstöðvarinnar segja að málið sé í rannsókn og séu öryggisverðir sérþjálfaðir til að fást við tilvik þar sem flugfarþegar beri hringi og pinna á viðkvæmum stöðum. Sögðu þeir enn fremur að það væri skylda miðstöðvarinnar að gæta öryggis amerískra borgara og sú háttsemi hryðjuverkamanna að fela háskalega hluti innanklæða væri vel þekkt. Lagði miðstöðin fram mynd af „brjóstahaldarasprengju" máli sínu til stuðnings. „Þetta var fáránleg uppákoma sem ég ætla ekki að taka þegjandi og hljóðalaust. Enginn verðskuldar að lenda í svona löguðu," sagði Hamlin.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira