Keane kallar varaforseta FIFA trúð Elvar Geir Magnússon skrifar 12. september 2008 11:16 „Ef þessi maður er varaforseti FIFA, má þá guð hjálpa okkur öllum," sagði Keane m.a. um Jack Warner.
Roy Keane, knattspyrnustjóri Suderland, er allt annað en sáttur við ummæli Jack Warner, varaforseta alþjóða knattspyrnusambandsins. Warner sagði Keane sýna smærri þjóðum vanvirðingu og svaraði Keane með þeim orðum að Warner væri trúður. Deilurnar eru vegna sóknarmannsins Dwight Yorke sem kallaður var í landsliðsverkefni hjá Trinidad og Tóbago í miðri viku. Keane bannaði Yorke hinsvegar að taka þátt í verkefninu. Warner ákvað í kjölfarið að senda opið bréf til fjölmiðla þar sem hann sagði Keane greinilega líta niður á smærri þjóðir og sýna þeim vanvirðingu. Keane þverneitar fyrir þetta. „Ég hef sagt Jack mína skoðun á honum. Hann er trúður," sagði Keane. Yorke sagði í viðtali að hann væri milli steins og sleggju vegna deilna knattspyrnusambands Trinidad og Tóbago við stjórn Sunderland. „Yorke var að koma úr meiðslumn og hefur aðeins leikinn einn leik með varaliðinu. Hann er ekki kominn í fullt leikform, er 36 ára og getur ekki leikið tvo leiki á einni viku," sagði Keane. „Ég er stoltur þegar mínir leikmenn spila landsleiki fyrir sína þjóð. Ég er ekki eins og margir aðrir stjórar sem fara í einhverja sandkassaleiki. Staðreyndin er bara sú að Yorke er ekki fullkomlega klár í slaginn og hefur þar að auki sagst vera búinn að leggja landsliðsskónum á hilluna." „Hr. Warner kemur með þessar hótanir gegnum fjölmiðla og þykist hafa leikmennina í huga en það er ekki satt. Ég ætla að skrifa bréf til Jack en það fer ekki til fjölmiðla eins og hann gerði. Ef þessi maður er varaforseti FIFA, má þá guð hjálpa okkur öllum," sagði Keane.
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira