Burnley sló út Chelsea Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. nóvember 2008 22:34 Frank Lampard, leikmaður Chelsea. Nordic Photos / AFP
Burnley gerði sér lítið fyrir í kvöld og sló út Chelsea á Stamford Bridge er liðin mættust í ensku deildarbikarkeppninni í kvöld. Burnley leikur í ensku B-deildinni en hafði engu að síður betur gegn toppliði úrvalsdeildarinnar í kvöld eftir sigur í vítaspyrnukeppni. Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 1-1. Brian Jensen, markvörður Burnley, var hetja sinna manna í kvöld. Hann varði tvær spyrnur, frá Wayne Bridge og John Obi Mikel en leikmenn Burnley misnotuðu aðeins eina vítaspyrnu. Wade Elliott hefði getað tryggt Burnley sigur með því að skora í fimmtu umferð vítaspyrnukeppninnar en hann skaut framhjá. Jensen varði hins vegar frá Mikel í fyrstu umferð bráðabanans eftir að Mike Duff hafði skorað fimmta mark Burnley í vítaspyrnukeppninni. Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði Burnley í kvöld en var tekinn af velli á sjöundu mínútu framlengingarinnar. Didier Drogba kom Chelsea yfir á 27. mínútu en hann hefur verið frá á tímabilinu vegna meiðsla. Þetta var hans fyrsta mark á leiktíðinni en markið hans í kvöld kom eftir undirbúning Frank Lampard. Burnley var hins vegar ekki búið að játa sig sigrað og á 69. mínútu jafnaði Ade Akinbiyi metin fyrir liðið eftir að hafa fylgt eftir skoti Chris Eagles. Franco di Santo meiddist í upphafi framlengingarinnar og þar sem Chelsea var búið að nota sínar þrjár skiptingar urðu þeir að klára leikinn einum manni færri. Hins vegar fékk Steven Caldwell, varnarmaður Burnley, að líta rauða spjaldið þegar skammt var til loka framlengingarinnar. Hann fékk þá sína aðra áminningu fyrir brot á Florent Malouda.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira